28mars
Það er bara komið vor hérna í Philly, 26°C hiti í dag!!! Á reyndar ekki að haldast alveg svo gott en um 15°C spáð næstu daga. Hulda fær þá allavega aðeins betra veður en er heima en hún er einmitt að koma í kvöld. Get ekki beðið eftir að fá tyrkish pepper og fleira góðgæti að heiman ...og auðvitað að sjá hana Huldu mína. Fæ meira að segja páskaegg, veiveivei. Í fyrra var fyrsta árið sem ég fékk ekki páskaegg. Amma sá alltaf um eggin og foreldrar mínir bara neituðu að taka við því hlutverki. Ég var í fýlu í mánuð í fyrra þegar ég þurfti að kaupa mitt eigið egg svo ég sagði foreldrum mínum að þau gætu nú ekki gert mér það aftur þegar ég er alein og allslaus og yfirgefin í stóra útlandinu svo þau sendu páskaegg með Huldu 
Ég var hjá Vilborgu í Miami um helgina, voða gaman hjá okkur. Ég var ekki alveg að falla inn í hópinn þarna, hvítasta hvíta stelpan á svæðinu eins og þið getið séð á myndunum... Veðrið hefði nú getað verið betra, skemmdi aðeins fyrir planinu okkar en það gerði svo sem ekki mikið til. Fórum í mall-ið fyrsta daginn þar sem sólin lét alls ekki sjá sig þann daginn. Fórum svo um kvöldið á innanhússtenniskeppni þar sem var leikið í myrkri með “black lights”. Á fös ætluðum við í siglingu en röðin var svo löng að við nenntum ekki að bíða og löbbuðum aðeins um á South beach. Skoðaði campus-inn á lau og um kvöldið var mesta rigning sem ég hef séð, veit ekki hvort það sést nógu vel á myndunum. Síðasta daginn var mjög gott veður og við fórum á ströndina. Ég er greinilega ekki í æfingu við að setja á mig sólarvörn þar sem ég var með þónokkra brunabletti hér og þar um líkamann, aftan á vi hné, ofan á vi úlnlið, aftan á hæ upphandlegg o.s.frv.
Nú má ég loksins segja frá því að ég er að verða móðursystir!!! Hlakka svo til, búin að bíða heillengi eftir að segja frá þessu en eftir nákvæmlega 6 mán verð ég stóra frænka. Maurinn fæðist vonandi á Íslandi og þá fæ ég að vera með, gaman, gaman. Ég er mest hissa yfir því að mamma sagði ekki fleirum frá því en hún gerði...
Ég ætlaði að koma heim á morgun en er búin að framlengja ferðina. Verð hér í Philly fram á páskadag, fer þá til Minnesota og verð þar í 4 vikur á spítala og kem heim í byrjun maí. Hef þá nokkra daga til að lesa fyrir próf sem er 11. og fer til Tailands 12. maí. Verð svo að vinna á Sauðárkróki í sumar svo ég kem eiginlega ekki almennilega heim fyrr en í haust!
Er búin að vera inni á deildum á spítalanum síðustu vikurnar sem er mjög gaman. Miklu, miklu stærra en heima og mikið áhugavert að sjá. Búin að vera á innkirtladeild og er núna á lungnadeild. Það er hlaðið á mann verkefnum svo ég hef ekki sofið mikið síðustu vikurnar, endalaus vinna! Á svo enn eftir að klára verkefnið mitt hér á CAG svo ég verð að vera ofurdugleg þá nokkra daga sem ég hef eftir að Hulda fer heim og ég fer til MN.
Annað sem á daga mína hefur drifið frá því ég bloggaði síðast er m.a. þetta:
-Tónleikar m. Badly Drawn Boy – mjög góðir
-Tónleikar m. Anthony and the Johnsons – enn betri
-Ráðstefna í NY um íþróttameiðsli og íþróttatengd vandamál barna og unglinga.
-Fór í 2. stærsta (stærsta ef talið í fermetrum verslunarpláss) mall bandaríkjanna hérna rétt fyrir utan Philadelphia. Keypti nú ekki mikið þar sem það var bara svo erfitt að vera þarna í öllum mannfjöldanum.
-Lior kom í heimsókn eina helgi, fórum út að borða, djamm, keila, versluðum óléttuföt. Voða gaman að sjá e-n úr fjölskyldunni.
-kynntist nágrönnunum á neðri hæðinni og fór með þeim að djamma bæði kvöldin þarsíðustu helgi
-drakk grænan bjór á St. Patrick´s day
-var veik í nokkra daga
Svo er fullt af fólki búið að eiga afmæli í mars, mamma 12., Erla Sigga 17., Ingibjörg Íris 19. og Svenni 21. Örugglega enn fleiri sem ég hef gleymt og verða bara að afsaka það...
Ætla að setja inn nokkrar myndir áður en ég sæki Huldu á lestarstöðina...
01mars
Var að skoða bloggið mitt frá því ég var síðast í bandaríkjunum og þar fór mestur textinn í að kvarta undan bandaríkjamönnunum. Þarf greinilega að herða mig í því, tek samt minna eftir öllu svona núna þar sem ég er ekki með sjónvarp og þarf ekki að hlusta á milljón auglýsingar á dag um hvernig þú getur keypt heila búslóð án þess að borga neitt fyrr en eftir 2 ár og enga vexti í 5 ár og bla, bla, bla...
Ég ætla að byrja á því að kvarta undan strætó. Tek strætó til og frá spítalanum á hverjum degi og þó að hann eigi að ganga á 10 mín fresti þá þarf ég nánast alltaf að bíða í allavega 15 mín sem mér finnst alveg óskiljanlegt! Þegar ég bíð hérna við spítalann koma líka oft 3 strætóar (sama leið og minn) í hina áttina áður en minn kemur loksins! Kannski þýðir áætlunum að hann komi kl. 17:22 EÐA 17: 32 EÐA bara ekki. Hefði átt að vita að það var ekki allt með felldu þegar ég las áætlunina og sá að það var AM service, PM service OG after midnight service 
Inni í strætó eru svona 1700 skilti þar sem fólk er vinsamlega beðið um að fara út um aftari dyrnar á strætónum en fólk gerir sér samt ferð úr öftustu röð til að fara út fremst, hvað er málið!!! Þetta þýðir að það tekur nokkrar mín bara að komast upp í strætó, gæti verið svona helmingi fljótari á leiðinni ef fólk færi bara út um aftari dyrnar... Svo er auðvitað líka alltaf fyndið hvað kanar eru spéhræddir. Hef verið dugleg að fara í gymmið og ég hef 2x séð e-n fara í sturtu. Um daginn sá ég meira að segja e-n skipta um föt inni á klósetti! Svo sem fínt að hafa einkasturtu... Mágur minn var einmitt ekki vanur þessu þegar hann kom fyrst til Íslands, sundlaugarverðirnir í Vesturbæjarlauginni reyndu að ná honum úr sundskýlunni með valdi 
En já, síðasta helgi var aðeins rólegri en þegar Halla var hérna. Fór í partý á fös, myndir koma bráðum. Svo sinfónían á lau sem var mjög gaman.
Jæja, er búin að plata strákana út með mér að fagna afmæli bjórsins á Íslandi svo ég ætla að drífa mig heim
22febrúar
Þriðji dagurinn í röð sem hitastigið er yfir frostmarki! Ágætis tilbreyting, búið að vera fyrir neðan núllið alla hina dagana held ég...
Halla var hérna um helgina. Kom með lest á fös kvöldið og þá kíktum við aðeins á skemmtistað nálægt mér og hittum Brian og Erin sem ég er að vinna með og vini þeirra. Á lau ætluðum við að reyna að skoða e-ð hérna í borginni en enduðum eiginlega bara á því að vera í búðunum og eyða peningum 
Fórum út að borða á lau kvöldið með Jonathan, hittum svo Ed, sem er líka að vinna með mér, kærustuna hans og vini á írskum bar. Þar var okkur Höllu boðið upp á fleiri, fleiri skot og drykki sem við gátum að sjálfsögðu ekki neitað. Enduðum í eftirpartýi hjá Ed og Jen þar sem við Halla fórum á kostum, okkur fannst við allavega ógeðslega fyndnar þá...
Sun var frekar erfiður en þar sem þetta var nú síðasti séns að sjá e-ð af borginni sem Höllu fannst mjög ljót þá löbbuðum við niður í gamla bæinn og sáum Liberty Bell. Þar biðum við heillengi glærar, rauðeygar og angandi af áfengi með öllu fjölskyldufólkinu eftir að sjá þessa frægu bjöllu og tákn lýðræðis um heim allan skv. kananum... Fannst hún nú eiginlega bara frekar lítil og ómerkileg
16febrúar
Netid a minni tolvu virkar ekki svo eg verd ad skrifa med utlenskum stofum 
Aslaug systir var e-d ad monta sig af vedrinu i Granada en thad er lika sol hja mer i dag, reyndar lika -3 (feels like -11 skv. weather.com)... Thad er allavega haett ad snjoa en sidustu daga hefur verid thad sem kanarnir kalla "snowstorm" sem er s.s. nokkur snjokorn og gola. Thad la allt i lamasessi her fyrir 2 dogum vegna thessara oskapa, skolar lokadir og ollu frestad her a spitalanum. Frekar fyndid...
Aetla ad drifa mig heim og ad taka til og skura adur en Halla kemur med lestinni.
14febrúar
Ég hef oftast verið með myndavélina þegar ég hef farið út svo þeir sem vilja verða bara að skoða myndasíðuna, nenni ekki að skrifa allt aftur nema bara að þetta var allt voða skemmtilegt. Dragdrottningin tók kærasta vinnufélaga míns fyrir eins og sést á myndunum, mjög gaman.
Var reyndar ekki með myndavélina þegar Superbowl var. Við horfðum á leikinn heima hjá einum í vinnunni, það var bara allt í lagi að horfa á þetta þó að ég kunni ekki reglurnar. Eftir leikinn fórum við upp á þak og skutum upp nokkrum flugeldum áður en við drifum okkur aftur niður. Stuttu seinna var þyrla farin að fljúga yfir hverfinu en hún er víst oftast í loftinu á kvöldin að fylgjast með byssuskotum sem eru daglegt brauð hér, allavega einn drepinn á dag. Það var m.a.s. maður skotinn nokkrum "blocks" frá mér fyrir nokkrum vikum og það á að vera ágætt hverfi 
Setti líka inn myndir af herberginu þar sem ég er að vinna núna. Strákarnir kalla það Mantown og fannst ekki ástæða til að breyta því fyrir mig, sögðu að ég gerði vinnustaðinn síður en svo kvenlegri nema kannski fyrir súkkulaðiátið.
Halla bekkjarsystir mín er í Hartford og ætlar að koma í heimsókn næstu helgi þannig að ég verð að fara að þrífa og taka til. Ætla að reyna að túristast aðeins þá, hef reyndar farið tvisvar sinnum farið á listasafnið á happy hour en enn bara séð málverkin sem eru á leiðinni á klósettið 
Heimilishaldið gengur annars ágætlega, bara hlutir sem máttu hvort eð er breyta um lit hafa litast í þvotti
Það er algjört kjaftæði að það þurfi að sortera þvott eftir litum og þó það standi á miðanum að fötin megi ekki fara í þurrkara þá hefur ekkert eyðilagst ennþá. Eins og ég hef nú röflað í mömmu hvað hún þvoi mikið þá er ég ekkert skárri, þvæ fleiri fleiri vélar í viku...
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili svo þetta hverfi nú ekki.
12febrúar
Var búin að skrifa heillanga færslu sem svo hvarf. Er farin heim í fýlu!
Nýjar myndir á myndasíðunni.
01febrúar
Var að panta miða til að heimsækja Vilborgu í Miami í mars!!! Var líka að fá miða sem ég keypti á tónleika með Anthony and the Johnsons í Brooklyn 9. mars, gaman, gaman...
Þegar ég talaði um matinn síðast var ég ekki búin að prófa morgunmatinn, hann er ekki síðri!!! Beikon, egg, pulsur, beyglur, brauð, kornflex, belgískar vöflur, múffur, kökur, you name it. Vild´eg hefði ekki asnast þangað í morgun, cheeriosið sem ég hef verið að borða í morgunmat á ekkert í allar þessar kræsingar... Þegar dagurinn byrjar svona er ekki annað hægt en að éta bara eins og svín allan daginn svo í dag var ég voða amerísk og fór á Wendy´s og Dunkin Donuts.
Vaknaði voða snemma, var mætt kl. 6:20 á spítalann. Fæ að sitja kennslu fyrir unglækna nokkra morgna í viku. Þetta var fyrsta nóttin sem ég vakna ekki e-n tíma milli 2 og 3 og get ekki sofnað aftur. Það kom í ljós að þetta stafaði eingöngu af bjórleysi og leystist vel og auðveldlega þegar ég fékk mér einn bjór í gær. Er með einn við höndina núna fyrir þessa nótt 
Var í búð áðan og heyrði voða mikil læti og skarkala, e-r að öskra "I didn´t do nothing" aftur og aftur og hinn líka að öskra og maður heyrði hnefahögg dynja. Ég er auðvitað svo móðursjúk að ég þorði ekkert að kíkja strax hvað væri um að vera, bjóst alveg eins við byssuskotum næst svo það var best að reyna að verða ekki fyrir svoleiðis... Þegar ég svo loksins þorði fram sá ég hvar 200 kg starfsmaður búðarinnar hélt niðri 50 kg heimilisleysingja sem hafði verið að stela. Löggan var svo að koma þegar ég fór út að ná í greyið. Það er töluvert að heimilislausu fólki hérna, ég á svo erfitt með að horfa upp á þetta, fæ samviskubit ef ég gef þeim ekki e-ð en það er auðvitað ekki hægt að gefa öllum... 
Ég bý í miðbænum og þar sem ég er á að vera nokkuð öruggt en fólk er alltaf að vara mig við að vera ekkert að labba of mikið suður, eða norður eða vestur... Svo hefur e-r maður, sem gengur enn laus, verið að áreita konur kynferðislega, m.a. í mínu hverfi þó síðustu 2 árasir hafi verið norðar. Hann er víst með e-ja fótaáráttu svo ég ætti nú kannski að vera nokkuð safe þar sem ég gæti léttilega drepið e-n með táfýlunni minni, hann yrði ekki lengi að hlaupa á brott eftir að hann tæki mig úr skónum!!! Hér eru allir í lokuðum skóm allan daginn í vinnunni, það má ekki vera í opnum skóm á spítalanum (allavega ekki skurðstofunum) og helst ekki á rannsóknastofunum ef e-ð myndi hellast niður. Keypti mér skó í dag og langaði helst til að fá nýtt par en ekki þá sem ég hafði sjálf mátað
Á morgun er ég að fara með einum úr vinnunni á dragshow að sjá Martha Graham Cracker. Það er víst svona söng/standup show og á að vera voða gaman. Hann er mjög fyndinn þessi strákur, verður alltaf að fá að velja útvarpsstöð og syngur svo með popplögum og dansar allan daginn. Nokkrir úr sundliðinu hans eru líka að fara og hann segir mér að sund sé mjög hýr íþrótt...
Á fös á kannski að kíkja út og á sun er ofurskálin og þá ætlar einn úr hópnum að vera með hitting. Nóg að gera hérna...
29janúar
Mamma þóttist fyrst vera aðeins móðguð þegar ég var að gera lítið úr tölvukunnáttu hennar og sýndi mér möppu með nokkrum mismunandi tenglum (sem hún bjó ekki til sjálf b.t.w.) og vildi meina að hún væri farin að kunna aðeins meira á tölvur. Seinna um kvöldið fannst henni alveg magnað að Áslaug systir gæti skrifað færslu á sama blogg úti í Taiwan og hún notar á Spáni 
Ég var á rannsóknastofunni þri-fim frá 8 til hálf 6 svo ég var voða þreytt og nennti ekki að skrifa neitt hérna. Á fös fór ég svo með hjúkrunarfræðingi sem er yfir klíníska hluta rannsóknarinnar yfir á spítalann á fundi og fékk að hanga á skurðstofunni með aðstoðarfólki hennar að fá blóðsýni. Skurðstofugallarnir þarna eru alveg jafn unflattering og grænu náttfötin heima, ekki svona aðsniðið og fínt eins og í Grey´s... 
Þarna voru 16 skurðstofur og það á að fjölga þeim bráðlega. Heima eru samtals 16 skurðstofur á Hringbraut og Fossvogi og hérna er þetta bara fyrir börn. Aðeins stærra batterí hér...
Á spítalanum er McDonalds og hægt að fá alls konar annan mat, pizzur, sushi, samlokur, hamborgara, salatbar, smoothie o.s.frv. Það er svo margt sem mig langar alltaf í að ég hef leyst það þannig að ég fer bara tvisvar í mat, fyrst kl. 11 þegar ég er orðin svöng og svo aftur um 1 þegar allir hinir fara
Er ennþá ekki byrjuð að prófa holla matinn... Ætla að reyna að finna mér gym til að fara í svo ég geti haldið þessu áfram með góðri samvisku.
Hópurinn sem vinnur þarna í Center for Applied Genomics, þar sem ég er næstu vikurnar, fór saman út að borða og drekka eftir vinnu á fös. Það var bara mjög gaman. Borðuðum á bar nálægt spítalanum og fórum svo á svona týpískan bandarískan bar þar sem við fórum í pílukast og pool. Einn úr hópnum var að vinna hjá Ísl. erfðagreiningu og bjó á Íslandi í 6 ár. Hann var mjög ánægður að það væri kominn Íslendingur til að djamma með, loksins væri þarna e-r sem gæti haldið í við hann í drykkjunni og entist e-ð frameftir
Hann ætti nú bara að sjá þegar ég er í almennilegu drykkjuformi! Ég fór síðan með honum og vinum hans á djammið aftur í gær hérna í hverfinu mínu og við fórum á svona alla helstu staðina. Það lokar allt hér kl. 2 og svo eru nokkrir svona "after hours" klúbbar en þeir loka samt líka frekar snemma, hálf 4, og það kostaði 20$ að fara inn!!! Ætli mar verði bara ekki að venjast því að fara bara aðeins fyrr út á kvöldin...
Eigandinn kemur á morgun til að athuga þetta músamál svo ég verð að laga aðeins til, nota kannski tækifærið og tek myndir. Set nokkrar myndir inn í kvöld eða á morgun.
Jæja, þurrkarinn búinn; jájá, ég er farin að vinna heimilisstörf ótrúlegt en satt!!!
23janúar
Þá er ég komin á áfangastað. Flaug til NY á fös, tók leigubíl með sætisfélaga mínum úr vélinni inn á Manhattan og fór þaðan í lest til Philadelphia. Þessi strákur sem sat við hliðina á mér er s.s. íslenskur járningamaður og býr í 7000 manna bæ í miðjum þjóðgarði í North Carolina sem heitir Brevard. Þar er fólk ekki að stressa sig yfir hlutunum, enginn læsir bílum eða húsum, fólk hittist til að dansa e-s konar dans sem ég man ekki hvað heitir og allir (nema Knútur) reykja gras. Síðast þegar hann fór á barinn með e-jum rednecks þarna flaug víst setningin "Thank god we´re driving, we´re in no condition to walk!" Það er víst voða fallegt þarna og örugglega þess virði að kíkja.
Fékk svo íbúðina á lau, tóma fyrir utan rúm. Hún er á góðum stað og bara ágætis íbúð, eldhús, stofa, svefnherbergi og bað. Það hefur ekkert bólað á mýslunum sem voru hérna áður en ég flutti inn, er samt enn með gildrurnar uppi ef þær ákveða að koma aftur. Ég er búin að kaupa það mikilvægasta: sængur, kodda, púsl, plasteldhúsbúnað og smá mat en fríhafnarnammið hefur nú samt verið uppistaðan í flestum máltíðum
Keypti mér lítið borð og ristavél núna áðan á leiðinni heim og stól í gær svo þetta fer nú bara að verða nokkuð heimilislegt. Ég tek myndir þegar ég er búin að laga til því þó ég sé nú bara búin að vera hérna í 3 daga og í nánast tómri íbúð þá hefur mér e-n veginn tekist að snúa öllu á hvolf, þetta kemur kannski engum á óvart sem hefur komið í herbergið mitt heima...
Eyddi helginni í að ganga um borgina í brunagaddi. Andlitið á mér er frostbitið og ég er ennþá rauð í framan. Í dag var aðeins hlýrra en það hafði snjóað í nótt og um 1/2 cm snjólag á gangstéttunum. Mér fannst alveg ótrúlega fyndið að það var fjöldinn allur af fólki að moka gangstéttarnar og það var víst margra tíma seinkun í barnaskólum í dag út að þessum "snjóstormi". Magnað.
Ég skil ekki af hverju ég tók ekki ullarnærfötin með mér en ég keypti gammósíur/hlaupabuxur sem ég get svo arfleitt Ingu syss að þegar hún og Lior koma hingað í heimsókn í mars. Ég fer nú bara út að hlaupa svona 1x á ári og þá myndi ég nú aldrei láta sjá mig í svona hlaupabuxum. Ég verð að nota tækifærið og monta mig af systur minni svona á opinberum vettvangi, þó svo að hún hlaupi í hallærislegum buxum, en hún hljóp maraþon í haust eftir að hafa æft í 9 vikur! Ég held að það sé nú nokkuð vel af sér vikið.
Það sem mér finnst nú merkilegast er að ég er búin að vera hérna ein í 2 nætur og ekkert orðið hrædd en ég er alveg fáránlega myrkfælin (fyrir aldur allavega) og ég er meira að segja að lesa vampýrubók!
Fór á spítalann í dag sem er aðeins stærri en barnaspítalinn heima... Ég byrja á tilraunastofu í nokkrar vikur og fer svo inn á deildir. Fékk bara svona smá kynningu í dag og mér líst bara vel á þetta.
Jæja, kominn tími til að prófa nýju ristavélina.
19janúar
Síðast þegar ég bloggaði varð það til þess að mamma mín, þá nýbúin að læra á play takkann á video-inu, lærði á tölvu!!! Þ.e.a.s. hún gat opnað bloggið eftir að pabbi hafði sett link á desktop-inn á tölvunni. Nú fannst henni hún auðvitað vera fær í flestan sjó og fékk sér m.a.s. netfang. Í staðinn fyrir að saumaklúbburinn sendi pabba tölvupóst sem svo prentaði hann út fyrir mömmu fær hún nú póst á sitt eigið netfang sem eitthvert okkar hinna opnum og prentum út fyrir hana. Þetta eru náttúrulega alveg gífurlegar framfarir 